Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
26.3.2009 | 20:54
Í aðdraganda kosninga hver er sannleikurinn.
6.3.2009 | 23:55
Hrunadans.
7.1.2009 | 23:15
Hvenær losnar íslensk alþýða við þessa óværu.
2.1.2009 | 22:43
Ekki hætta mótmælum
18.7.2008 | 23:25
Umhverfismál og Össur ekki alsgáði.
29.3.2008 | 14:53
Hvar er veruleikinn
26.4.2007 | 23:36
Stæðsti sértrúarsöfnuður á Íslandi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.4.2007 kl. 21:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2007 | 21:26
Snúum okkur að kjarna málsins.
Þar sem ég er í framboði fyrir Frjálslynda flokkinn get ég ekki stillt mig lengur um að láta í mér heyra vegna þess ótrúleg málflutnings sem andstæðingar okkar hafa uppi. Allt gengur útá það að snúa útúr og afbaka það sem við höfum sagt í innflytjendamálinu. Allt tal um að við séum með kynþáttafordóma og að við viljum leggja stein í götu fólks sem til okkar kemur til vinnu eða til langdvalar er tómur þvættingurog dæmir sig sjálft. Það lýsir ennfremur fáfræði og vanþekkingu á málinu að vilja ekki ræða. Gott væri fyrir ýmsa sjálfskipaða snillinga og alvitringa sem fara offari í öllum fjölmiðlum um mál sem þetta, sem þeir hafa ekki hundsvit á,að vinna 3-4 ár t.d. í Kárahnjúkum, það hef ég gert og það var mjög merkilegur tími. Þar vann ég með fjölda útlendinga og var það alveg prýðisfólk. Innflytendjamál má alveg ræða rétt eins og önnur mál og við þurfum ekki leyfi frá neinum til þess en ég hvet alla til að ræða þessi mál af skynsemi og það er ég viss um að betra er að ræða þessi mál núna en þegar vandamálin koma upp, það verða ýmis mál sem við þurfum að leysa ef hingað flytja 5-10þús manns á ári það gefur auga leið. Að halda öðru fram er bara að skjóta málinu á frest og það verður ekki til bóta það hafa aðrar þjóðir fengið að reyna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.4.2007 | 11:29
Um vanda umhverfisverndarsinna.
Mjög er það athyglisvert að fylgjast með umræðum um umhverfismál og öllu því tengt, veður fólk þar elginn og meira og minna bullar tóma vitleysu. Gaman væri t.d. að vita hvað margir af æstustu verndarsinnunum hafa komið að Kárahn, Gjástykki, Þeistareykjum og kynnt sér hvað þar hefur verið rannsakað og gert. Kárahnjúkav ein og sér er stórmerkilegt mannvirki en umræðan um hana hefur aldrei komist á það stig að rætt væri hana sem slíka. Nú er kannski rétt að taka það fram að ég er útálandibúi. Það fer orðið nett í taugarnar á okkur að ekkert megi gera hjá okkur nema það fari í endalaus möt hjá hinum og þessum spegulöntum í 101.Eitt gott dæmi við hvað við megum búa í þessu ,boruð var hola austur í Kelduhverfi til að finna heitt vatn það tókst vatnið fannst og rennur nú bara sjálft út í Jökulsá á fjöllum til að hita hana upp en við íbúarnir megum ekki nota það vegna þess að blýantsnagarar í umhverfisráðun og fleirri sjálfskipaðir snillingar í áðurnefndum 101 þurfa að gefa sitt leyfi er þetta nú í lagi ég spyr, ég gæti nefnt mörg fleirri dæmi í þessum dúr við hvað er að eiga.Og oftar en ekki er borið við þetta sé umhverfismál, verum sjálfum okkur samkvæm og förum þá eins að allstaðar þá er hægt að fara að ræða nátturuvernd og umhverfismál að einhverju viti.Nú skal það áréttað að ég er alls ekki talsmaður þess að málin sé ekki skoðuð og rædd,og tel mig vera engu minni verndarsinna enn marga þá sem hæst láta.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Axel Jóhannes Yngvason
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar