Færsluflokkur: Bloggar

Aumkunarverð umræða

Það er alveg með ólíkindum að fylgjast með umræðuni í þjóðfélaginu þessa dagana þó sérstaklega um skuldir okkar í lífeyrissparnaðarreikningum almennings og ýmisa annara í Bretlandi og Holllandi dettur fólki virkilega í hug að við verðum ekki að borga þetta hversskonar fáranleiki er í gangi. Hvað myndi íslenskur almenningur segja ef allt væri tapað sem fólk á í td. Sun Life og Allians í guðs bænum farið að ræða þetta af einhverju viti og hengið ekki bakara fyrir smið látið þá sem komu okkur í þessi vandræði gjalda fyrir, ekki fólk sem lagði inn sitt sparifé á þessa reikninga í góðri trú enn vissi ekki að það var skifta við glæpamenn frá Íslandi.Og svo ofaní kaupið ætlar Geir og hans pótindátum að væla út stuðning við sínar arfavitlausu hugmyndir að við sleppum við að borga það sem við skuldum.Ég spyr hversvegna í ósköpunum er ekki hægt að setja lög strax sem frysta eigur glæpamannana sem stjórnuðu bönkunum og ná þannig einhverju upp í þessar skuldir.Ef þetta heldur svona áfram í einhverja daga eða vikur enn þá tekst sjálfstæðismönnum að eyðileggja hér allt eins og ég og margir fleirri voru búnir að spá, enn aldrei datt mér í hug neitt í líkingu við það sem nú er orðið.

Lengi getur vont versnað

 

Ég hélt því mjög fram fyrir síðustu alþingiskosningar að efnahagsstjórn þáverandi ríkisstjórnar þó aðallega sjálfsstæðisflokks væri ekki eins góð og Geir H vildi halda fram og það er nú að sannast all rækilega. Það er ekkert svo vitlaust að þessari auma ríkisstjórn sem nú situr láti ekki verða af því að framkvæma það, nægir þar að nefna niðurskurð á þorskkvótanum sem virðist vera gert í hrópandi ósamræmi við allt sem ábyrgir stjórnmálamenn myndu gera. Enn það er nefnilega málið að ráðherrar sjálfsstæðisflokksins eru svo algjörlega veruleikafirrtir að það er hættulegt orðið að halda það að niðurskurður á þorskkvóta um 60þús tonn hafi enginn áhrif á þjóðarbúið er hreint fáranlegt. Þó er það ekkert í líkingu við það að hafa alls óhæfan mann til að stjórna peningamálum þjóðarinar ég nefni enginn nöfn þori því ekki því þá gæti ég fengið að kenna á því síðar þar sem sjálfsstæðisflokkurinn stjórnar nú orðið flestum dómstólum landsins með því að skipa þar dómara eftir eiginn geðþótta og hagsmunum og ef einhver vogar sér að setja útá þá skipun er hann eða hún annaðhvort talinn ekki hafa vit á tilteknu máli eða þá einhverjar annarlegar hvatir liggji þar að baki og eins og ég segi er þetta ástand orðið stórhættulegt og ég vona svo sannarlega að samfylkingin átti sig í tíma og láti sjálfsstæðisflokkinn ekki teyma sig út í það fúafen sem hann fór með framsóknarflokkinn og hann bíður þess sennilega aldrei bætur þ.e. framsóknarfl. Það er nefnilega engum hollt að blindast svo af eigin ágæti að sjá ekki til sólar. Það eru svo mörg mál sem Geir og félagar þurfa að fara að skoða í eigin ranni og best væri nú að þeir tækju sér frí um tíma.Hvernig getur það verið að nokkur heilvita maður láti sér detta það í hug að nokkurt hagkerfi geti gengið með þeirri peningastefnu sem rekin er með 15%stýrivöxtum og bullandi verðbólgu og stæra sig svo af góðri efnahagsstjórn eins og Geir gerði fyrir síðustu kosningar það virðist hafa verið eitthvað ekki  alveg rétt í þeim málflutningi. Þó tekur alveg steinin úr þáttur Árna Matth í dómaraskipunarmálinu þar sem hann fer langt út fyrir öll þau mörk sem hæfa ráðherra. En það eru svo ótal mörg mál sem hægt væri að nefna að það væri að æra óstöðugan og fólki er svo algjörlega misboðið valdhrokinn og ósvífnin í ráðherrum sjálfsstæðisflokksins.Ég skora á samfylkinguna að slíta þessu samstarfi nú þegar og fara að starfa með fólki sem vinnur fyrir fólkið og standa þar með við orðð sín.


Stæðsti sértrúarsöfnuður á Íslandi.

Sjálfsstæðisflokkurinn er stæðsti sértrúarsöfnuður á Íslandi það kemur best fram í þeim málflutningi og athöfnum þeirra sem teljast til þessa söfnuðar t.d. er ekki hægt að fá bændur sem eru í þessum söfnuði til að fallast á það að gjörningur fjármálaráðherra í þjóðlendumálinu sé brot á eignarrétti einstaklingsins. Það er með hreinum ólíkindum fólk er svo flokkshollt og þrælsóttinn svo mikill að allt er látið yfir sig ganga og trúin það sterk að birtan og eilíf hamingja sé rétt handan við hornið að ég bara skil þetta  engan veginn. Má vera að fólk sé keypt eða er það satt sem oft hefur heyrst að til að komast áfram verði maður að vera í þessum söfnuði. Fyrir mína parta nei takk. Hvers vegna er Þorsteinn Már á yfirreið með frambjóðendum þessa söfnuðar og nú á degi verkalýðsins í boði safnaðarins í Grímsey og allt frítt, er verið að tryggja að hann og allur sá fjöldi sem í kringum hann er verði múlbundinn þessum söfnuði.Það er dapurlegra en orð fá lýst að hlusta á forkólfa þessa söfnuðar tala um réttlæti og jöfnuð þvílík hræsni og öfugmæli og manni verður óglatt.Skírt dæmi um heilagleika þessa söfnuðar er meðferð hans á þeim aðilum sem starfa með eða koma þar í helgistundir þeir ná sér aldrei eftir það.Ég trúi því ekki fyrr enn ég tek á því að fólk ætli að kjósa þetta yfir sig eina ferðina enn,og bið fólk að trúa ekki þeim hræðsluáróðri sem söfnuðurinn ástundar að ekkert sé hér hægt að gera nema þeir séu þar gerendur og ef hinn almenni borgari þessa lands meinar eitthvað með því sem fram kemur í skoðanakönnum um að hér sé bæði ójöfnuður og óréttlæti gefum þá þessum söfnuði frí.

Um vanda umhverfisverndarsinna.

Mjög er það athyglisvert að fylgjast með umræðum um umhverfismál og öllu því tengt, veður fólk þar elginn og meira og minna bullar tóma vitleysu. Gaman væri t.d. að vita hvað margir af æstustu verndarsinnunum hafa komið að Kárahn, Gjástykki, Þeistareykjum og kynnt sér hvað þar hefur verið rannsakað og gert. Kárahnjúkav ein og sér er stórmerkilegt mannvirki en umræðan um hana hefur aldrei komist á það stig að rætt væri hana sem slíka. Nú er kannski rétt að taka það fram að ég er útálandibúi. Það fer orðið nett í taugarnar á okkur að ekkert megi gera hjá okkur nema það fari í endalaus möt hjá hinum og þessum spegulöntum í 101.Eitt gott dæmi við hvað við megum búa í þessu ,boruð var hola austur í Kelduhverfi til að finna heitt vatn það tókst vatnið fannst og rennur nú bara sjálft út í Jökulsá á fjöllum til að hita hana upp en við íbúarnir megum ekki nota það vegna þess að blýantsnagarar í umhverfisráðun og fleirri sjálfskipaðir snillingar í áðurnefndum 101 þurfa að gefa sitt leyfi er þetta nú í lagi ég spyr, ég gæti nefnt mörg fleirri dæmi í þessum dúr við hvað er að eiga.Og oftar en ekki er borið við þetta sé umhverfismál, verum sjálfum okkur samkvæm og förum þá eins að allstaðar þá er hægt að fara að ræða nátturuvernd og umhverfismál að einhverju viti.Nú skal það áréttað að ég er alls ekki talsmaður þess að málin sé ekki skoðuð og rædd,og tel mig vera engu minni verndarsinna enn marga þá sem hæst láta.


Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

Um bloggið

Axel Jóhannes Yngvason

Höfundur

Axel Jóhannes Yngvason
Axel Jóhannes Yngvason

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 12
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 217

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband